Jæja elskurnar þá er komið að lokum hér
Ég er komin með bækistöðvar annarsstaðar og vona bara að þið finnið út hvar það er .......ef ekki þá sendið þið mér bara póst kristiana@kopavogur.is
Farið þið nú vel með ykkur love Nana
» 0 hafa sagt sína skoðun
vika í afmæli
kvart hundrað
» 4 hafa sagt sína skoðun
» 3 hafa sagt sína skoðun
Jæja dúllurassar!
Jólin eru búin að vera yndisleg og er ég bara búin að slappa af og hafa það gott í mínu 14 daga fríi Vonandi höfðuð þið það gott líka
Ég upplifði mín skemmtilegustu áramót með yndislegustu vinkonu minni áramót sem að áttu bara að vera partý en enduðu í bænum Takk fyrir FRÁBÆRT kvöld dúllan mín:*:*:*:*:* Elska þig
Ég hélt að mitt ár væri að koma....árið 2007!!! Ég er komin með nóg af drama og leiðindum og var búin að ákveða að nýja árið yrði uppfullt af kærleik, gleði og skemmtilegheitum En nei e-ð hef ég nú misreiknað mig bara 2 dagar búnir og mér líður hörmulega
Ég er búin að vera vinna í sjálfri mér og vinna í því að verða betri manneskja. Auðvita á ég mína galla eins og allir aðrir en ég setti mér það markmið að vera trú sjálfri mér og rækta ástina og vináttuna sem að ég hef í kring um mig Setti mér það markmið að reyna sýna fólkinu í kring um mig að mér þykir vænt um það og að ég sé til staðar fyrir það þegar á reynir. Það er e-ð sem að ég gerði rangt og það erfiða er að gera mér ekki grein fyrir því hvað það er sem að maður gerði rangt
Það kom upp sú hugmynd í kvöld að ég ætti kannski bara að flytja e-t út Ég veit að það gefur ekkert að flýja vandamálin en ég held að ég þurfi bara að komast í breytt umhverfi í smá tíma Ég er bara það mikill aumingji að ég hef ekki orku í að vera særð mikið oftar ég bara held að ég geti ekki meir
Hvert ætti ég að flytja?? allar uppástungur vel þegnar Mamma stakk upp á Ástralíu! hehehe...endilega segið mér hvaða land ykkur finnst mest spennó
Jæja krúttíbollur. þetta er orðið langt og leiðinlegt hjá mér og ég veit að margir hugsa núna....hvað er hún að væla það eru margir sem að hafa það miklu verr en hún....það veit ég vel en maður þarf líka að geta tjáð sig aðeins annars springur maður og það er það sem að er í gangi hjá mér núna
Allavega sæta fólk!!! lifið þið lífinu lifandi og ræktið þið fjölskyldu og vini Látið þau finna fyrir því að þau skipta e-u máli í lífi ykkar Það er ekkert betra en að heyra: þykir vænt um þig eða takk fyrir að vera til eða bara gefa eitt knús það er svooooo gott
Þykir vænt um ykkur
» 9 hafa sagt sína skoðun
Jæja elskurnar mínar.....hvað er að frétta af ykkur??
Af mér er fínt að frétta Fékk Martin minn heim í gær frá Kenya fattaði að það fer alveg að koma jólafrí og varð strezzzzzuð útaf jólgjöfum en það er mánudags vandamál er haggi Sveivin mín
MatarÆÐIÐ hefur gengið þokkalega það eru farin 13kg Finn það samt núna að það er erfiðara að ná restinni af sér Ég kvíði doldið jólunum er svo hrædd um að bæta á mig.........nei nei ég svelti mig bara (hahahahaha ef að þið þekkið mig þá vitið þið að nana sveltir sig EKKI )
Já og eitt að lokum..... fór að sjá Bondarann á mánud. sji.. fo.. hvað mér fannst hún góð allavega besta Bond-mynd sem að ég hef séð í langan tíma
Bond................Nana Bond
» 5 hafa sagt sína skoðun
Mér finnst þetta æði
http://a.muglets.com/1AEO1-A
En ykkur??
Fös 8.12.2006 Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)Þú ert án efa sjálfum/sjálfri þér nægastur/nægust og viljasterkastur/viljasterkust en það eflir metnaðargirni þína án vafa. Þú hefur eflaust á tilfinningunni að þú ert fædd/ur til að sigra og það er vissulega staðreynd ef þú leggir þig fram við að hjálpa þeim sem minna mega sín. Vatnsberinn býr yfir hugrekki til að átta sig á og yfirvinna eigið ójafnvægi og styrk til að verða hugsjónarmanneskja í alla staði. Veldu upp á eigin spýtur ef þú stendur frammi fyrir vali yfir helgina framundan.
Ohhhhh....ég á yndisleg 17 börn Við erum bara búin að vera föndra í allan dag og gera fínt fyrir jólin og þeim finnst þetta svoooo gaman og þau eru svoooo glöð
Svona áidda að vera fyrir jólin
Hvað á annars að gera um helgina??
Jólatónleikar skólans voru í gær og gekk það frábærlega Það komu um 250 manns að horfa á Ein af þeim var hún Rutla mín Ákváðum við að fara og fá okkur að borða eftir tónleikana og enduðum við á Players.....mmmmm það var svo gott
Takk fyrir yndislegt kvöld sætust og vá hvað það var gott að hitta þig og tala við þig
Svo eru það seinni tónleikarnir í kvöld ...en það verður bara stuð
Fariði vel með ykkur þarna úti sæta fólk
» 2 hafa sagt sína skoðun
Ég fer og kaupi mína 1. jólagjöf þetta árið á eftir
Ég er að fá nýja myndavél Hún verður frá YNDISLEGU múttu minni og frá mér til mín
Gavöööð hvað ég hlakka til
Fer á eftir og pauka 1 stk BLEIKA myndavél
opupXL2(false);">
Nana jólasveinka
Jæja rassálfarnir mínir
Fór á yndislega tónleika í gær Þessir tónlistamenn eru snillingar Mér leið eins og 14 ára þegar sumir komu á svið og ég þurfti alveg að hugsa......er ég virkilega að sjá hann í alvöru hahahaha, já ég veit! ég er crasy
Allavega.... Hafið þið það gott um helgina snúllurnar mínar
Nana
Nei ég bara spyr
Nanus ráðvillti
akkuru akkuru akkuru gerirhúnidda akkuru
Endilega allir að taka þátt Ef að þú ert feimin/n við að kommenta hér undir nafni........svaraðu þá bara nafnlaust þ.e.a.s.ef að þú þekkir mig e-ð .....bara gaman að sjá hvað fólk hefur að segja
Góða skemmtun
1. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar, myndirðu halda að ég væri á föstu eða lausu? 2.Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug? 3.Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit? 4.Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig? 5.Hvaða lag minnir þig á mig? 6.Hverjum öðrum er röddin mín líkust? 7.Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig? 8.Hversu vel telurðu þig þekkja mig? 9.Hvernig stráka fíla ég? 10.Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma? 11.Hvað er mest einkennandi við mig? 12.Hvaða búðir elska ég að fara í? 13.Lokaorð til mín?
Takk fyrir ......Nanus
Mið 22.11.2006 Vatnsberinn (20.jan - 18.feb) Þroski, áræðni, dugnaður, sjálfstæði og ekki síður reynsla þín kemur hér fram. Stöðuhækkun sem tengist starfi eða nýtt starf kann að vera framundan hjá þér ef marka má vatnsberann. Ákveddu þig hvert þú ætlar þér og hvernig þú kýst að nýta vitsmuni þína og tíma. Þú virðist vita hvert þú ætlar þér í lífinu og hvernig markmiðum skal náð og ekki síst hvar tækifærin liggja. Metnaður, drifkraftur sem sjaldan sést, og sá eiginleiki og vilji til að ganga ófarinn veg býr greinilega innra með þér.
Jiiii...ég er svo spennt fyrir svona stjörnuspám núna og ótrúlegt en satt þá er þetta ekki 1 spáin sem að ég les sem að segir að það sé stöðuhækkun eða nýtt starf framundan obbobbobb....hvað gera Nanusar þá
Þri 21.11.2006 Vatnsberinn (20.jan - 18.feb) Hér er merki þess að þú ert oft á tíðum of upptekin/n af vandamálum annarra. Reyndu að breyta því en slík líðan hindrar framgöngu mála hjá þér. Einnig er þér ráðlagt að reyna eftir fremsta megni að losna við þörfina að verja stöðugt tilfinningar þínar og skoðanir. Þú ættir aldrei að gleyma hvað þú ert fær um að afreka.
Gæti þetta verið satt
Jæja þá! ein önnur helgin að renna í garð
Þessi verður sko afslöppun Eina sem að er planað er að ég er að vinna á morgun 10 - 16 og á sunnudaginn er NEMÓ á milli 14 - 16 Endilega koma og sjá börnin mín dansa....það er svo sætt
Svo langar mig að eyða tíma með vinum mínum líka .....vona bara að þeir hafi tíma ein er dugleg að læra annar er með litlu fallegu prinsessuna sína núna, þriðji að reyna læra og á fullu í sjálfboðastarfi svo á ég fleiri vini sem að ég á eftir að tékka á ohhhh ég á svo dúlega vini og ég á líka yndislega vini sem að eru til staðar fyrir mig hvað sem á reynir ohhh ég er alltaf að reyna hætta vera svona væmin en það gengur bara ekki æji svona er ég bara
Elsku: Eyjan mín,Svavan mín, Ragnar Már, Martin og Ísakur! TAKK FYRIR AÐ VERA TIL:*:*:*:*:* (vantar svona alvöru kyssu kall)
Ykkar cræmíarivver skvíza
Nana, Nansla, Nanus